5.31.2005

svik og prettir! svik. og. prettir. !

ég hélt að frelsisstyttan væri miklu stærri. i want my money back.

annars var helgin snilld. fyrir utan ashes and snow þá kíktum við í icp sem er international center for photography. þar voru tvær sýningar í gangi. önnur var rosaleg. myndir eftir larry clark, sá sem gerði myndina kids. erfið sýning. hits close to home. og svo recent acquisitions í portrettum. agalega lekkert.

en núna er það vinna og sturlun þangað til orlando. þá verður það annarskonar sturlun.

æ já og hvernig get ég gleymt... mr. d. er í sumarbúðum hjá mér líka. myndin frá gönguferðinni okkar í gær. hann fann dauðan snák í vatninu. sem betur fer tókst mér að ná hvutta áður en hann ákvað að velta sér upp úr þessu. skil ekki hunda.

No comments: