5.15.2006

ji! leikur!

hey hér er skemmtilegt.

hvað kemur þegar þú setur æpoddinn þinn á sjöffúl?
æpoddinn minn, hann schenevus reiddi fram þennan lista.
gjöriðisvovel!
1. mississippi goddam - nina simone. hún er æði. þetta er af live diski sem ég man ekki í augnablikinu hvað heitir.
2. run on - moby. moby. hann er líka æði.
3. little trip to heaven - tom waits. hann er lang bestur. og þetta er yndislegt lag með yndislegum texta. hver vildi ekki láta semja svona til sín?
4. waiting in vain - bob marley and the wailers. uppáhaldið mitt með bob er samt exodus. finnst það alltaf vera flott.
5. stars - quarashi. leiðinlegt að þeir skyldu vera hættir.
6. you are a runner - wolf parade. lagið hennar kelly sem hún hlustar á meðan hún hitar upp fyrir maraþon. minnir mig á hana.
7. way down in the hole - tom waits. jibbí!
8. earthquake weather - beck. hann er bara dúlla.
9. oh! you pretty things - david bowie. þetta er geðveik útgáfa sem ég held að ég hafi fengið hjá dr. gunna fyrir löngu síðan. mér finnst samt heroes með bowie flottast.
10. porchlight - neko case. nýleg uppgötvun. fallegt lag.

en svo mundi ég að það er ekkert öll tónlistin mín geymd á schenevusi litla, þannig að ég tók líka lista af partísjöffúl á ætjúnsinu á tölvinu litla.

1. old man - masta killa. fyrsta línan er: "i want two big patties, special sauce, onions, tomatoes, lettuce, on a sesame seed bun. on a sesame seed bun, you dummie!" ódauðlegt nýtt rapplistaverk hjá mastakilla. held að það sem mér finnst svo flott fyrir utan gargið í upphafinu er hvað það er flottur oldskúl hljómur í þessu hjá honum.
2. spanish bombs - clash. hressilegt og allt að því poppað lag frá bólugröfnu paunkurunum. minnir mig á kalla bróður. ég fékk aldrei að hlusta á "eðlilega tónlist" þegar ég var krakki. ég þurfti að þola það að vera sjö árum yngri en bróðir minn sem þar af leiðandi réði yfir græjunum. utangarðsmenn, ac/dc, iron maiden, clash, egó og öll íslenska pönkflóran. engin helvítis vísnaplata hér.
3. viðrar vel til loftárása - sigur rós. litlu rassálfarnir.
4. regem cui omnia vivunt - aurora surgit. ragna frænka gaf mér þennan disk, og þar af leiðandi hugsa ég til hennar þegar ég heyri þetta.
5. isobel - björk. ekki mitt uppáhald með henni. vespertine er mitt uppáhald, sérstaklega frosti.
6. boogie - paolo conte. vildi óska að ég skildi hvað hann segir.
7. ask - smiths. gelgja.
8. the way you look tonight - billie holiday. hvernig henni tekst að láta lofsöng og ástaróð hljóma svona þunglyndislega! billie ein.
9. ice cream man - tom waits. mér finnst þetta með svona krípaðri lögum waits. það er eitthvað við það. ég á mér ekkert uppáhalds lag með tom. sveiflast á milli blue valentine í heild sinni og closing time, sérstaklega closing time sjálfu. aftur á móti þoli ég ekki poncho´s lament.
10. c´etait un jour de fete - edith piaf. oh-la-la.

af þessu má ráða að það er gaman að koma í partí til mín. ekkert skrítið að tom waits skuli koma svona oft upp, enda er hann algjörlega í uppáhaldi. en enginn bob dylan. það er skrítið. hey og annað skrítið, lög númer 2 og 3 á partýsjöfflinu.

amm. annars er ég létt sturluð þessa dagana af því að lesa yfir mig í stjórnunarfræðiritum. ég þarf að skrifa ritgerð um macroergónómíu og organizational structure fyrir föstudaginn. sjittur. það er eins gott að ég er ekki í mba námi. ég myndi deyja fyrsta daginn vegna heilablæðingar. þannig að ég segi bara ajö í bili.

4 comments:

Rannveig said...

clash eru mjög normal. ég hlustaði á þá ein og óstudd þegar ég var lítil. stóribróðir minn reyndi bara að láta mig hlusta á dire straits. það er náttúrulega sick. just ask me ask me ask me...

GEN said...

Waits rules! Sammála með Blue Valentine og sumt af Closing Time, er líka frekar svag fyrir Nighthawks at the Diner. Og reyndar flestu öðru. Djö... er erfitt að velja úr flórunni!

Helvutlen said...

jebbs, eg er sammal'ann Gunna um Blue Valentine. Einn af faum diskum (kannski sa eini) sem hefur verid i uppahaldi hja mer i 10 ar eda lengur. Besta lagid a disknum: Kentucky Avenue.
Og ur thvi ad thu minntist a ad lata semja lag fyrir sig eins og 'little trip to heaven', verd eg ad segja ad eg hef hlotid thann heidur ad diskur var gefinn ut i des thar sem sidasta lagid (cover af Waits laginu 'San Diego Serenade') var tilenkad mer. Nokk snidugt, finnst ther ekki?

Anonymous said...

Ég á ekki iHnúð. Spila bara Waldsteinsónötuna núna. Með Pollini.