5.15.2006

ji! leikur!

hey hér er skemmtilegt.

hvað kemur þegar þú setur æpoddinn þinn á sjöffúl?
æpoddinn minn, hann schenevus reiddi fram þennan lista.
gjöriðisvovel!
1. mississippi goddam - nina simone. hún er æði. þetta er af live diski sem ég man ekki í augnablikinu hvað heitir.
2. run on - moby. moby. hann er líka æði.
3. little trip to heaven - tom waits. hann er lang bestur. og þetta er yndislegt lag með yndislegum texta. hver vildi ekki láta semja svona til sín?
4. waiting in vain - bob marley and the wailers. uppáhaldið mitt með bob er samt exodus. finnst það alltaf vera flott.
5. stars - quarashi. leiðinlegt að þeir skyldu vera hættir.
6. you are a runner - wolf parade. lagið hennar kelly sem hún hlustar á meðan hún hitar upp fyrir maraþon. minnir mig á hana.
7. way down in the hole - tom waits. jibbí!
8. earthquake weather - beck. hann er bara dúlla.
9. oh! you pretty things - david bowie. þetta er geðveik útgáfa sem ég held að ég hafi fengið hjá dr. gunna fyrir löngu síðan. mér finnst samt heroes með bowie flottast.
10. porchlight - neko case. nýleg uppgötvun. fallegt lag.

en svo mundi ég að það er ekkert öll tónlistin mín geymd á schenevusi litla, þannig að ég tók líka lista af partísjöffúl á ætjúnsinu á tölvinu litla.

1. old man - masta killa. fyrsta línan er: "i want two big patties, special sauce, onions, tomatoes, lettuce, on a sesame seed bun. on a sesame seed bun, you dummie!" ódauðlegt nýtt rapplistaverk hjá mastakilla. held að það sem mér finnst svo flott fyrir utan gargið í upphafinu er hvað það er flottur oldskúl hljómur í þessu hjá honum.
2. spanish bombs - clash. hressilegt og allt að því poppað lag frá bólugröfnu paunkurunum. minnir mig á kalla bróður. ég fékk aldrei að hlusta á "eðlilega tónlist" þegar ég var krakki. ég þurfti að þola það að vera sjö árum yngri en bróðir minn sem þar af leiðandi réði yfir græjunum. utangarðsmenn, ac/dc, iron maiden, clash, egó og öll íslenska pönkflóran. engin helvítis vísnaplata hér.
3. viðrar vel til loftárása - sigur rós. litlu rassálfarnir.
4. regem cui omnia vivunt - aurora surgit. ragna frænka gaf mér þennan disk, og þar af leiðandi hugsa ég til hennar þegar ég heyri þetta.
5. isobel - björk. ekki mitt uppáhald með henni. vespertine er mitt uppáhald, sérstaklega frosti.
6. boogie - paolo conte. vildi óska að ég skildi hvað hann segir.
7. ask - smiths. gelgja.
8. the way you look tonight - billie holiday. hvernig henni tekst að láta lofsöng og ástaróð hljóma svona þunglyndislega! billie ein.
9. ice cream man - tom waits. mér finnst þetta með svona krípaðri lögum waits. það er eitthvað við það. ég á mér ekkert uppáhalds lag með tom. sveiflast á milli blue valentine í heild sinni og closing time, sérstaklega closing time sjálfu. aftur á móti þoli ég ekki poncho´s lament.
10. c´etait un jour de fete - edith piaf. oh-la-la.

af þessu má ráða að það er gaman að koma í partí til mín. ekkert skrítið að tom waits skuli koma svona oft upp, enda er hann algjörlega í uppáhaldi. en enginn bob dylan. það er skrítið. hey og annað skrítið, lög númer 2 og 3 á partýsjöfflinu.

amm. annars er ég létt sturluð þessa dagana af því að lesa yfir mig í stjórnunarfræðiritum. ég þarf að skrifa ritgerð um macroergónómíu og organizational structure fyrir föstudaginn. sjittur. það er eins gott að ég er ekki í mba námi. ég myndi deyja fyrsta daginn vegna heilablæðingar. þannig að ég segi bara ajö í bili.

5.08.2006

the last one

hae litlu vinir.
her er buid ad vera sma mikid ad gera. listinn er kominn ut til serfraedinga. sidasta profid mitt var i dag - munnlegt prof i universal design og eg held ad thetta hafi bara gengid vel. tokst meira ad segja ad kreista "wow, that's an impressive solution! how pretty!" ur professornum, thannig eg er ekki fra thvi ad henni hafi bara litist vel a thetta.

sidan eru nottlega bara ooooorfair dagar thar til muttan laetur sja sig a svaedinu, og bara nokkrir dagar i vidbot ad maggan og hjallinn og maggan komi lika i heimsokn. thad er ekki laust vid thad ad eg se bara dalitid spennt.

uhhhh. hvad meira? tjah, vorid er svo sannarlega komid. viftan a fullu i skrifstofunni og brunkufar eftir sandalana a naesta leiti. thannig ad madur hefur nu sko ekki yfir neinu ad kvarta. thannig ad i kvold aetla eg bara ad slappa af og fa mer bjor i godra vina hopi.

ajo.

5.03.2006

strakur!

10 taer, 10 fingur. jibbi!